Ingu blogg
Klukkan
Dagsetning
9. febrúar 2012
17.02.2008 13:23:25 / ingalara

Jebb... ELSKU snúlludúllurassarófurnar mínar %-).....

...Þá eru það bara  4. dagar... í að mín verði loks FULLORÐIN!!! (en vonandi ekki full-orðin..... hahahaaahahhaa ) ...óókei...viðurkenni alveg - þessi var virkilega - aula-leim- hjá minni - sóóóssooorrríííí

En verður maður ekki öörugggglegaa   fullorðin þegar maður verður FERTUGUR ??? 

Því ég man bara þegar ég varð þrítug, þá var ég  búin að bíííððaa leeengi eftir því, og hlakka mikið til, að verða loksins fullorðin  (ekki stelpuskjáta, heldur svona ... virðó kona... já og kanski jafnvel ráðsett frú)  Eeen, allt kom fyrir ekki, ég var sama gamla stelpuskjátan og ég hafði alltaf verið.

Í dag er ég, og hef verið, alveg hrikalega, gasalega happý með það að mitt "þrjátíu-og-eitthvað" tímabil hefur liðið í ´stelpuskjátufýlingi´

En nú er ég sem sagt að spá í hvort ég breytist eitthvað á fimmtudaginn??? Hvort að ég verði kanski loksins fullorðin ???

Kanski á ég ekkert að vera bíða eftir að ég fullorðnist, kanski er bara gott að vera pínu stelpuskjáta (sérstaklega þegar maður er komin á fimmtugsaldurinn) 

Maður "eldist" þó allavega ekki á meðan. Híhí

Þetta voru bara smá pælingar hjá minni..... en hvað fynnst ykkur ???

Jó, þetta blogg er búið að vera svolítið speisað, en svona er ég bara   -kexxxrugluð og snarvitlaus hálf-áttræð gömul stelpuskjáta

Muna! muna! muna! - var ég búin að skrifa muna! ??? -  Að : Knús,Kossar;Klemmur&Kreystur elskurnar mínar, er það allra besta í heimi og engin ástæða að spara það. 

Mikið af KKKK til ykkar

Inga %~)


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 21:11:59 / ingalara

Gleðilegt ár elsku alheimsdúllurnar mínar ;)

Jæja loksins loksins :$ hei...það 27.jan...ekki 13.jan bara svo það sé á hreinu

Ég veit að það er langt síðan síðast, en ég hef verið svo gasalega bissý 8|

Já mín er barasta sest á skólabekkinn aftur, loksins ;)

(nú er ég búin að nota orðið loksins það oft að ég get ekki notað það aftur alveg í bráð )

Enívei, ég var svo heppin að komast inn hjá Starfsendurhæfingu norðurlands í nám á menntaskólastigi (fæ ekki námið frá Dk metið hér heima) en þar er ég að nema ensku, stærðfræði, félagsfræði, tölvutækni og svo koma fyrirlestrarnir inn einn af öðrum líka, þannig að mín er bara í fullu námi. ;) eða kanski er'ða 8| nei nei, þetta verður bara fínt vegna þess að þær Magna og Sigurlaug eru algjörir englar, þær halda svo vel utanum mig og allt það fína starf sem þarna er unnið. Takk fyrir mig stelpur ;)

Svo er ég að sjálfsögðu á fullu í ræktinni líka, já Grafitytímarnir eru að svínvirka...ég veit ekki hvar ég væri líkamlega ef ég hefði ekki þetta frábæra 'bekkja'æfingakerfi. Ég get bara ekki annað en að lofa þetta æfingakerfi sem Bjarg er með ...'algerlega upp til Agnars'

Svo svitna ég á brettinu, hjólinu og í tækjunum inn'á milli tíma....jebb, bara kraftur í minni... fynnst ykkur ekki ??? :haha: :haha:

En í allt annað. Langamýrarliðið og gestir höfðu það alveg gasalega gott um jól og áramót. Gunni kom í land 21, des. eftir fimm vikna vagg og velltu, og var húsmóðirin á stórheimilinu að sjálfsögðu búin að gera allt klárt fyrir hátíðina og sinn egta kall, hann skyldi fá að slappa af er á fast land kæmi, Og það gerði kauði svo aldeilis um munaði, og reyndar við öll.

Karen og Frikki komu svo á Þollák með heimsins fallegasta, krúttilegasta, yndislegasta og lang-lang besta ömmustrák sem fyrirfynnst á jarðarkringlunni...og þó víðar væri leitað, og þá voru jólin komin hjá minni, búin að fá alla mína í hús í heilu lagi.

Þau fóru svo í bæjinn aftur 27.des til að vera með mömmu hans Frikka um áramótin, en við fengum pabba minn í staðin 28.des og var hann með okkur um áramótin.

Gunni fór svo aftur út á hinn salta sjó 3.jan. :cry: en hann kemur í land 6.feb. ;) og þá er kallinn minn kominn í frí. :haha::haha:

Hann ætlar greynilega að vera á staðnum þegar kella nær þeim merka áfanga (21.feb.) að verða fetug og fjörug...og fín... og flott...og..........................

Hei :!: muni'ði ekki alveg eftir því að kyssast og knúsast alveg helling, það er 'nebla' svo geggjað og algerlega nauðsinlegt fyrir sálartetrið, ..........og allt hitt ;)

Millijónskrilljón Kossar, Knús, Kram og Kreistur elsku dúllurnar mínar......

Inga Lára

Er með myspace síðu og þar eru fullt af myndum, tékkið á því:D

slóðin er: www.myspace.com/ingalarasig  


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 02:29:48 / ingalara

Ræktin, ræktin, ræktin....

... mér fynnst svo gaman í ræktinni :haha:  Ég held að það komi til vegna þess að ég er að fynna hvað mikið þetta 'sprikl' gefur mér. Þessir Gravity bekkir eru einfaldlega geggaðir og eru búnir að redda mér alveg. Mæli hiklaust með þeim, sérstaklega fyrir þá sem eru slæmir í baki eða með vefjagigt o.s.f.

Ég er alltaf að bæta við mig dögum, lengd æfinga og þyngd og er komin á það stig að vilja varla fara þaðan vegna þess að ég vil alltaf MEIRA og MEIRA.

Ég er farin að geta gert hluti sem ég hef ekki gert í HEILT ÁR, spáið í það. :!::!::!::haha:

Á laugardaginn vorum við Tara Björk í Bónus. Við löbbuðum um, hentum vörum í körfuna, skoðum bókaúrvalið og fl. Svo var skundað að wc rekkanum, pappírinn sem ég kaupi helst er í efstu hillunni. Tara gerði sig til í að klifra upp og ná í pappírinn eins og vanalega, en þá gerði mín sér lítið fyrir og teigði sig upp í hæðstu hæðir og náði 'ananas, heilhveitis' pappírnum. Hvað segiði við því ??? :!::!: 

Þetta hef ég ekki getað gert í eitt ár, og ég reif í Töruna (laust að sjálfsögðu) og sagði "sástu þetta??? ég meina SÁSTU ÞETTA??? Ég GAT þetta jessss ég gat náð helv.....heilhveitis klósettpappírnum". Ég varð eins krakki og brosið varð hjúds, ég er heppin að vera með eyru, annars annars fyki hausinn af, og ég held að ég þurfi nú að nota toppstykkið þó að það sé ekki það mikið í því  he:!::haha:

Svona "litlir" hlutir eins og þetta dæmi, skipta rosalega miklu máli þegar maður hefur verið hálf örkumla í langan tíma.

Þannig að bjartsýnin hefur tekið völdin hjá minni 8) Því að ég veit núna að ég vil, get, skal og ætla að verða aftur...... ÉG. ;)

Jæja,jæja. Aftur komin tími til að hætta þessu og henda sér í heyið. (er farin að sofa betur, júhú;)

Hafið það algörlega, meiriháttar VÁ :!::!: alheimsdúllurnar mínar, og muniði að kyssast og knúsast og allt það, og BROSA :lol: það lyftir öllum upp í kring um ykkur.... LOFA.

KKKK

Inga pinga Póóó %-)  :haha:

HEI, munið að kvitta ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 02:22:16 / ingalara

Ég var að hugsa....

...JÁ  ;) Meira að segja mín getur lent í svoleiðis aðstæðum 8)

En siríeslí þá var ég pæla "það heimsækja nokkrir þessa síðu á dag, kanski svona á milli 10. og 20. manns eða svo, og ef enhver skrifar yfir höfuð í 'skoðunardálkinn' þá eru það ca. 1-2 %. Ennþá færri skrifa í gestabókina....Hverjir ætli þetta séu sem eru að skoða síðuna mína??? Er það kanski að mestu leiti einhverjir sem þekkja mína ekkert, eða eru það vinir og kunningjar???" Mig langar að vita, ég er svo fjári forvitin.

Svo fékk ég smá svar við þessum pælingum mínum þegar ég talaði við Lindu vinkonu í kvöld. Ég ætlaði að fara að segja henni fréttirnar að ég væri byrjuð í æfingum og fékk svarið "ég veit allt um það"  (ha??? nú!!! kváði ég, alveg eitt spurningamerki 8| ) "já ég fylgist alltaf með blogginu þínu, ja allavega þessari 1. færslu sem kemur frá þér á mánuði" - Nú geriru það, ekki hafði ég hugmynd um það, kúl :D

Svo töluðum við vinkonurnar áfram í 'smá' tíma (alltaf gaman að tala við Lindu mína :lol: ;)  en svo eftir símtalið byrjaði ég að finna smá fiðring í höfuðið. Guð minn Almáttugur, ég var að fá svona heilablóðfall eða flogaveiki, kanski sykursýkissjokk.... nei mín var svei mér þá að lenda aftur í sömu aðstæðum og um daginn... ég fór að HUGSA.

Já, ég fór að hugsa  um það hvað það væri algjörlega meiriháttar ef að allir þeir sem litu inn á síðuna mína, tala nú ekki um þá sem axúlí læsu bloggið mitt myndu skrifa í skoðunarreitinn.  Það þyrfti ekki að vera neitt mikið, bara svona 'smá kvitt' eða bara 'kvitt, kvitt'.

Nú ef að einhverjum ástæðum þið eruð hrædd við að 'kvitta' í skoðunar.dálkinn, nú þá er alltaf hægt að 'kvitta' í gestabókina....ekki satt ???

Jæja, bólið bíður. og það er dónalegt að láta bíða eftir sér, ætla því að drífa mig :D

Munið - knús og kossaflens lífgar uppá tilveruna, að ég tali nú ekki um eyrnabros, það svínvirkar. Ef að knúskossaflensið virkar ekki, eða er ekki alveg viðeigandi, eins og það að flaðra upp um kassadömuna í bónus, nú þá er það alltaf gamla góða kurteisin.

KKKK

Inga Píng Pó 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 15:45:15 / ingalara

Hei...

 Ég er byrjuð í ræktinni á fullu - loksins :!::!::!:   Ég fer í gravity tíma 2 -3 í viku og svo fer ég í salin allavega 1 sinni í viku líka, hvernig lýst ykkur á það ??? Markmiðið með því er að sjáfsögðu að styrkja vöðvana í bakinu eins vel og hægt er og að finna magavöðvana sem voru tíndir. Þetta gengur alveg ótrúlega vel og stefni ég að því að verða orðin svaka skutla og komin í þvílíkt tjúttform fyrir fertugs afmælið mitt þ. 21.feb. næstkomandi - ég hef því 3. mán.- ÉG VIL, ÉG SKAL, ÉG GET, ÉG ÆTLA :!::!::!:

Puttinn á Gunna loksins orðin nokkurnvegin 'gang'fær, þótt flatur sé og svona eins og lamið hefði verið á með sleggju (nei, ég fékk ekki resept uppá slíka... ég og mínar sleggjur???) enívei, þá getur hann ekki talist fallegur (puttinn þ.e.a.s.) og verður líklega alltaf svona því beinin eiga víst aldrei eftir að fara saman á efstu kjúkunni. (þarna fyllti ég út smá speis með putta frásögn, sko mína)

En pojntið með þessari stuttu sögu er að mín er orðin grasekkja aftur :cry: því Gunni fékk aftur pláss á einhverjum dalli (fristitogara) að sunnan (man aldrei hvað hann heitir) og fór  út á föstudaginn síðasta þ.16.11..... Ég hef oft saknað hans, en aldrei eins mikið og í dag (21.11)  því kauði fagnar nýju ári  :lol::D:haha: til hamingju elskan mín og gleðilegt nýtt ár, ég vona að þessi nýja viðbót færi þér gæfu í alla staði. Megi Guð og gæfan vera með þér alla daga XX......og passaðu nú spaðana drengur, Ég vil fá þig heilan heim...ok??? ;)

Vanin á þessum bæ við svona stórum viðburðum sem þessum er að vekja viðkomandi afmælisbarn með afmælissöng (löngu útfærsluna) og er svo boðið uppá góðan morgunverð, rúnstykki með alskonar áleggi og svo toppað með góðri köku með kertum og kósí að sjálfsögðu. Gjafirna gefnar yfir yndislegri morgunstund með allri fjölskyldunni. Ekki er kvöldið verra, því þá ræður stjarna dagsins hvað hennar/hans hátign langar að snæða, og að sjálfsögðu er farið eftir því í einu og öllu. Fjölskyldan, kertaljós, góður matur svo ekki sé mynnst á að 'aðal' manneskjan er algjörlega í fókus, og ég verð að segja fyrir mitt leyti að þetta bræðir hjarta mitt í hvert einasta skipti.  þetta danskur siður sem við féllum algerlega fyrir þegar við bjuggum þarna úti, og ættleiddum með okkur heim   :lol:  Það er því 'örlítið' sárt þegar þannig stendur á að aðal stjörnuna vantar - en svona er víst lífið - Gunni minn :P ég bæti þér þetta upp þegar þú kemur í land ;)

Krakkadúllu'snúllurnar mínar eru ÆÐI. Þau hjálpa mikið til hér heima þrátt fyrir að það sé nó að gera hjá þeim öllum.

Patrick Örn og Daniel Þór eru á fullu í VMA, vinnu (annar í tvöfaldri og hinn bráðum líka) og svo á ræktin og boxið hug þeirra allann, svo er hangið með vinum (sem eru margir) já og rúntað út í eitt því gæjarnir - og þeir eru GÆJAR - eru komnir með bílpróf og Patrick verslaði sér eitt stykki bíl, svo er hægt að plata mömmu gömlu um eðalvagnin hennar þegar mikið liggur fyrir.

Taran mín er dugleg í skólanum sem áður og er líka að æfa söngleik með 7,8,9 og 10. bekk sem er 3. í viku, (frumsýnt 2.des.) og svo er hún jú allaf í boltanum, komin uppí 4. flokk og stendur sig feikna vel stelpan. Hún er líka vinamörg -á bæði kynin og er fótboltinn mikið spilaður, hoft á bíó bæði í heimahúsum og í bíóhúsum og svo bara 'hangið' og spjallað og sprellað eins og 12.ára krakkar gera.

Það leynir sér ekki að ég á bestu börn í heimi XXX  :!::!:;)

Jæja nenni ekki meira í þetta sinn.

Nú ætla ég að henda mér í fletið og loka augunum, tæma hugan, slappa af og sjá hvað gerist, kanski verð ég heppin og SOFNA - svona til tilbreitingar.

Brosið og verið góð hvort við annað, það er svo gott. Það má líka kyssast og knúsast, það er ennþá betra.

KKKK frá mér til ykkar.

Inga pínga pó :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 04:24:49 / ingalara

Ég held......

að ég sé komin með frákvarfseynkenni !!! Ég er ekki búin að sjá 'K-gellurrnar' mínar í 3 vikur, (nema Önnu Sjöfn sem reddaði mér alveg með grímubúninginn minn....takk ástsamlega elsku dúllan mín :lol:)

En 'siríeslí' stelpur við verðum að fynna dag sem allra, ALLRA fyrst, því mín er að fara á límingunum hérna.......ég verð að fá mitt 'fikx' jú nó. Leiðindastuðullinn er komin upp úr öllu valdi. Ég ligg/stend/sit hér heima og labba svo gryfjur í gólfið af fyr nefndum frákvarfseynkennum og svefnleysi. ..Já þessar helv.... svefntruflanir eru enn að bögga mig. Kanski er þetta allt í rugli hjá mér út af því að fæ ekki mitt 'FIKX' 8| svo upp með dagbókina stelpur og fynnum út úr þessu núna :!::!::lol:  ók???

Reyndar var ekkert leiðinlegt við GRÍMUBALLIÐ MIKLA á síðasta laugardag sem Linda dúllurass bauð mér á. Ég var WICCA NORNIN MACHA (og þeir sem vilja geta kíkt á  CELTIC -WIKKA síðuna sem er í dálkinum 'áhugaverðar síður';) og var mög ánægð með minn búning, ÉG VAR ÆÐISLEG og var að fíla mig í botn....svo sá ég alla hina búningana á svæðinu, (og minn 'feidaði' svolítið í samanburði :S )  ÞEIR voru mergjaðir :!::!::!: Og það voru ALLIR í búningum.  Linda vinkona var discógella dauðans (og þá er ég að meina að hún var geggjaðslega, æðislega, meiriháttar töff) Hún var lang flottust fannst mér - og alltaf í karakter gellllllaaaan. Þetta partý var algjörlega mergjað, takk elsku Linda mín fyrir að leyfa mér að koma með :haha:. Vona að ég fái að koma með á næsta ball :lol:

Leiðindastuðullinn er svo sem á leiðinni niður, því við vorum boðin í mat hjá Mæju og Sæma, í ekkert slor fæði - GÆS- nammmm (fáum reyndar allaf bara góðan mat og mótökur þar á bæ;) Ég á reyndar von á því að þessi 'blessaði' stuðull eigi eftir að fara langt niður hjá mé,  því að hjá þeim hjónakornu er allaf stuð, stuð, stuð - BARA HRIKALEGA GAMAN -

Nenni ekki að skrifa meira núna - ætla reyna að fara að sofa - bara SMÁ, ef það er ekki til of mikils mælst.....TAAKKK :^)

Veit að þið eigið eftir að eiga góða helgi allar þið alheimsdúllur þarna 'úti' og muniði knúsið ok ;)

KKKK

Inga, (pinga.... og mögulega smá pó;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2007 04:39:22 / ingalara

Já...ég veit...

Hvað klukkan er :( og ég ekkert búin að sofa :!::!::!: ):  Ég er algjörlega að missa vitið núna 8|

Og é sem  þarf að gera milljónogfimmtíu hluti á 'eftir'. Það eru bara ca. tveir tímar þangað til að ég þarf að´vakna'. Það er eins gott að ég er að fara til læknis í dag, vona að hann gefi mér resept á STÓRA sleggju.

Annars er ég að fara til Önnu Sjafnar (ein af "K-gellunum" mínum) og veit fyrir víst að ég kem þaðan út í dúndur stuði.....það er ekki annað hægt en að hafa það alveg meiriháttar VÁ með henni og hinum "K-gellunum" þeim Gerði og Mattý.

Ég sakna ykkar stelpur, verðum að hittast í næstu viku, ok ???

Jæja, ætla enn eina ferðina að reyna leggjast í bólið og vona það besta :!::!: 8|

Vona að þið njótið dagsins, og munið að brosa -  út að eyrum - þið gætuð fengið smá glott frá fúlasta fólki :S

KKKK

Inga :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 02:08:54 / ingalara

Gaman, gaman...

Því Linda vinkona kom í heimsókn í kvöld og var mikið spekulerað og spáð í hvað í ósköpunum við ættum að breyta okkur í fyrir GRÍMUBALLIÐ MIKLA á laugardag.

Furðuleg föt og búningar voru reytt út úr öllum skápum, hillum og kössum og vegið og metið hvaða tuskur hentuðu við slíka árlega, eðal athöfn sem GRÍMUBALLIÐ MIKLA er.

Eins og þið sjáið, er ég mjög spennt og hlakka mikið til að fara og vera einhver önnur en ég er dags daglega, og ætla ég virkilega að taka mitt 'hlutverk' alvarlega, og skilja Ingu greyið eftir heima. Ætla virkilega bara að ........GÓFORIT....JEEE !!! (þarna held ég að leikkonan sé að koma upp í mér, jibbý... hefur ekki látið á sér kræla lengi !!!)

Læt ykkur vita hvaða 'karaktera' við umbreytumst í eftir helgina...???

Hef annars ekki mikið að segja í dag. Svefntruflarnir að bögga mig ennþá, en ég ætla að sigrast á þessum fjanda - OG HANA NÚ -

Þegar maður fær ekki mikinn svefn verður maður 'sirijíslí' ruglaður í hausnum og ekki má mín við því ástandið, toppstykkið er nógu slæmt fyrir maður!!!!

Jæja, ætla að skríða undir sæng og vona að Loki gefi mér smá breik.

Ástar og saknaðar kveðjur til allra sem mér þykir geðveikt vænt um og hef ekki heyrt frá í ALLTOF langan tíma :cry:

KKKK á línuna :lol:

Inga :lol:

  


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 06:30:03 / ingalara

Já.....kella er á lífi enn....

 …síðan síðustu skif hér, hefur líðanin verið þannig að ég hef átt nokkra góða daga,:D en allof marga ....ekki svo góða,:S litið út eins og liðið lík inná milli og fólk hrökklast í burtu þegar það sér mig....örugglega af hræðslu við eitthvað hæðilegt smit.8|

 

Sumarið var ekki svo góður tími hjá mér, en í dag er vika síðan ég ´útskifaðist´ úr 6 vikna endurhæfingu frá Kristnesi og vonandi horfir allt til betri vegar, er allavega mun bjartsýnni á lífið og tilveruna.8)

 

Kristnes er yndislegur staður og þar er ekkert nema frábært starsfólk  sem dekrar við mann öllum stundum. Þar mætir maður umhyggju og umfram allt skilningi :P sem því miður er ekki allt of mikið af úti í hinum stóra heimi.:whut:

 

 “ætlarðu ekki í vinnu???!!! Það fá nú allir ýlt í bakið inná milli!! Ég var nú mjög slæm(ur) hérna um árið, en......þú þart bara að rífa þig upp og bíta á jakslinn”.:frown: Eitthvað þessu líkt fær maður allt of oft að heyra, því miður.   Bæðövei, er búin að reyna þetta með jakslana og það eina sem ég fæ útúr því eru aumir kjálkar.:klikk:

 

Það sem mætti mér þegar Akureyrarbær bara neitaði mínu VINNUSLISI voru orð míns yfirmanns “en varstu ekki krónískur baksjúklingur fyrir?” 8| sem kemur málinu við hvernig ??? :whut: Og hvað ef ég hefði verið það, ég var í vinnu og skilaði mínu og þá get ég ekki séð að það komi nokkrum manni við :!::!::!:

 

En nú held ég minni endurhæfingu áfram, og mátu læknar og Tryggingarstofnun að það tæki að minsta kosti ár að koma mér í sæmilega viðunnandi form, en verkina þarf ég víst að sætta mig við og lifa með það sem eftir er – og sættast við. En hver hefur sinn djöful að draga, og þetta er víst minn, :evil: En hei...gæti verið verra. Ég á þó séns á að komast í ´vinnuhæft´ form, og ætla mér að gera það – er ALLS EKKI tilbúin að hugsa um örorku á einn eða annan hátt – ÉG SKAL – ÉG GET :!::!::!::l

 

Og ég verð komin í gott tjúttform fyrir 21 feb. Þá verður mín nebla 40. ára ung :(;)

 

En ég vil þakka starfsmönnum Kristness ynnilega þann styrk, (líkamlegan og ekki síður andlegan) fræðslu, ummhyggju og hlíhug sem ég fékk í bunkum frá þeim og á eftir að nýta mér það sem eftir er. :haha:

 

Bónusin sem ég fékk svo í ofanálg með dvöl minni þar er fólkið sem ég kynntist, ég hafði alls ekki reiknað með því að eignast svona marga vini :D Og þeir vinir eru sko ekkert slor skal ég segja ykkur :lol:;)8) Ég kom sem sagt rosalega rík þaðan út.:P

Takk dúllurnar mínar, þið vitið hverjar þið eruð ;)

 

En nú í annað.... Karen mín og ég fórum út til Stokkholms þann 17. júní með litla ömmuprinsinn minn hann Aron Dag, í kuðungs-ígræðslu, og var aðgerðin gerð þann 19. á eins og hálfs árs afmælinu hans og gekk hún mjög vel. Nú er verið að stilla græjuna (á rétta bylgjulengd, ef svo má segja) gengur það hægt, en vonandi örugglega. :D

Hann er byrjaður í leikskólanum Sólbog sem er blandaður leikskóli og er alveg frábær, og er hann að fíla sig í tætlur þar.8)  Hann er í talkennslu líka og svo fær Karen táknmálskennslu, og má hún taka allt uppí 15 manns með sér (fjölskyldu og nána vini) Það er helv... fúlt að geta ekki nýtt sér það búandi hér og þau þar. Ætla að ath. með kvort ég geti fengið þessa þjónustu hér í bæ (er helv... skeptísk á bæjarapparatið, en læt á það reyna) Karen og Frikki eru loksins komin með litla ferlega krúttílega 2. herb. Íbúð á Lanholtsvegi og eru að sjálfsögðu ánægð með það. Þau eiga eftir að plumma sig ´feitt´ og ég er ferlega stolt af þeim. :haha::haha::haha:

 

Patrick og Daniel, “litlu” tvíbbarnir mínir, eru ekki svo litlir í dag. 17 ára, komnir með bílpróf, bíla (eða bíl, því Daniel minn hann náði að keira sinn ´smá´ útaf – engin meiddist – nema bílgeyið. Blessuð sé mynnig hans) En hann er strax farin að vinna í því að festa kaup á öðru farartæki, krossa putta að það endist betur en það síðasta.:S

Þeir eru mikið í ræktinni og svo er Daniel að fara að æfa box. Þeir eru svo báðir í VMA, Daniel á matvælabraut og Patrick á íþróttabraut og þeim líkar báðum mjög vel þar, og þetta er mjög góður skóli, mæli með honum. Báðir vinna þeir svo á Höllabáti í nánast hverri frísund og er ég farin að halda að þeirra sólarhringur sé lengri hjá þeim en okkur hinum. Þeir eru vinamargir og er heimilið hér oft eins og félagsmiðstöð, og oftar en ekki er setið niðri í stofu með ´gamla settinu´ og spjallað um allt og ekki neitt og það er æði að krakkarnir treysta okkur og líður vel hér, þetta eru líka yndislegir krakkar. Eins og þið sjáið er ég mjög stolt af tvíbbunum mínum, það er ekki annað hægt, þeir eru svo ljúfir, góðir og kurteisir strákar. :haha::haha:

 

 

Tara Björk er að gera það gott í skólanum (eins og vanarlega reyndar) og er hún að æfa núna söngleik með 7, 8, 9 og 10 bekk. Hún þurfti að fara í áheyrnarpruðu vegna þess hve margir vildu vera með (ímyndið ykkur – 4. árgangar = mörg börn) og hún komst inn...JESSSS. :haha: En eins og áður hefur komið fram þá kippir hún all verulega í móðurkynið að þessu leiti 8) Svo er stelpuskottið ALLTAF í fótbolta, hún æfir með 4. flokki 4. sinnum í viku og þar á milli fer hún út í fótbollta með vinum og bekkjafélögum. Hún er vinamörg eins og hin systkynin og er mikið um ‘sofelsisstúss’ bæði hér og þar um helgar. Svo er hún hjálpsöm við nágranna okkar (sem hún kallar “afa og ömmu í 6.” hún ‘ættleyddi þau stuttu eftir að við fluttum í götuna) Þau passa hund fyrir barnabarn sitt (að ég held) og fer hún með kvutta í gönguferðir þegar þau ekki treysta sér út með greyið – henni fynnst það reyndar ekkert leiðinlegt, hún elskar dýr og þau hana. Það er eins með hana og hina grislingana mína, það ég er mega stolt af henni – Yndislega blíð, góð og kurteis við alla. :haha:

 

 

Gunni minn var á sjó í sumar og var svo rosalega’heppin’ að gjörsamlega smassa á sér hægri baugfingur nokrum dögum áður en hann kom í land í ágúst, :whut: og það kom í veg fyrir að hann kæmist með næsta túr. Þetta var vinnuslis um borð og fékk hann að sjálfsögðu borgaðar sínar bætur fyrir þann túr. Ekki vesen þar á bæ eins og hjá mér, sem betur fer, það hefði nú alveg farið með geðheilsu okkar hjóna, og er hún nógu tæp fyrir eftir allt sem hefur dunið á síðustu misserin. En þegar hann kom heim blossaði upp gömul tilfynning, ég varð yfir mig ástfangin af flotta gæjanum mínum 8)  og hefur hann verið mín stoð og stitta í gegnum allt saman, og vona ég að ég hafi verið þar fyrir hann líka. ;)

 

 

En nú ætla ég að leita lögfræðings vegna vinnuslisamálsins vegna þess að ég ætla ekki að láta bæinn komast upp með þetta hjóðalaust:!::!: Svo er lögfæðingur komin með hitt málið í hendurnar, þ.a.s. skaðabóta / tjóna / kröfumál, vegna gífulegs fjártjóns sem við urðum fyrir þegar Akureyrarbær rústaði fyrirtæki okkar með ólöglegri samkeppni. :klikk:

 

Jæja mín bara komin í ham!!! ........Þá held ég að það sé nó komið í bili, enda er þetta orðin heil ritgerð og, já, ég veit að ég fengi ekki mjög góða enkunn í stafsetningu, en þið verið bara að þola það þangað til ég sest á skólabekk og vonandi læri það sem uppá vantar. Ég ætla ‘nebbla’ að gera einmitt það.... að láta draumin rætast og fara í nám :)En meira um það seinna.;)

 

Elsku dúllur alheims :P njótið lísins, dagsins í dag og verið góð hvort við annað :lol::haha:

 

 

KKKK

Inga ;)

 

 

Ps: Þið sem þraukuðu í gegnum allt þetta skrifelsi !!! megið alveg KVITTA  ok?? 


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 13:03:11 / ingalara

Ekki kulnað úr öllum æðum

Ég veit að ég ætlaði ekki að skrifa aftur fyr en ég væri orðin sátt við mig (og aðra) og ég vona að það fari nú að koma hjá mér .

Í millitíðinni set ég nokkrar línur á blað og vona að ég geti haldið mér sæmilega á mottunni.

Það hefur margt gerst síðan ég skrifaði síðast og því miður er megnið af því neikvætt.

Ég bíð nú eftir að komast inná Kristnes sem er endurhæfingarstöðin hér í bæ, og er að vonast efti að það verði núna í ágúst sem ég kemst inn. Þar á að taka blessað bakið í gegn og bind ég miklar vonir við það, hef heyrt að þetta sé góður staður.

Gunni er farin á sjóinn þar sem að Akureyrarbær gerði útum fyrirtækið okkar. Þeir hjá bænum brutu samkeppnislög í heilt ár með því að bjóða uppá ókeypis þjónustu á interneti (við rákum eina internet kaffið í bænum) og ekkert fyrirtæki stendur undir svoleiðis einokun. Svo þurfum við að bera allan kosnað (allt tap) á þessu uppátæki bæjarins og fáum ekkert nema skít og skömm frá þeim til baka, og þetta er bærinn sem auglýsir sig sem góðan fjölskyldubæ og að hér séu “ öll lífsins gæði”

Hef ekki fundið fyrir því þegar að bæjarapparatinu kemur.

Bærinn sjálfur er yndislegur og börnin eru ánægð í sínum skólum – já Patrick og Daniel eru í Verkmenntaskólanum og eru mjög ánægðir þar enda þrælfínn skóli. Daníel ætlar á kokkabrautina næsta skólaár og Patrick er að spá í smíðabrautinni, þeir voru báðir á almennri braut síðasta ár og gekk bara vel hjá þeim bræðrum.

Tara er að fara í 7 bekk í Brekkuskóla og er mjög ánægð þar og vorum við verulega ánægð með hana síðasta skólaár eins og bræður hennar, enda fékk hún góðar einkunnir og mætingu í topp.

Þannig að ljósi punkturinn í tilverunni hjá mér hafa verið börnin mín og hvað þau  eru að plumma sig, í skólanum, heima, já bara í lífinu.

Svo er það litli Aron minn, ömmustrákurinn, hann greyndist heyrnarlaus 30. apríl og er búið að vera mikið að gera í kringum það.

Karen og ég erum nýkomnar heim frá Stokkholmi þar sem Aron fór í kuðungsígræðslu.

Það gekk vel en það á eftir að koma í ljós þegar hann fær utaná-tækið 9. júlí hvernig það raunverulega gekk. Reyndar þá tekur það langan tíma að stilla tækið og þarf að vinna stíft með að kenna honum hvaðan ÖLL hjóð koma. Svo fer hann í talkennslu, táknmálskennslu og á sérstakan leikskóla þar sem hann fær aðstoð með sína fötlun.

Karen Ösp er búin að vera algjör hetja með hann og ég er ekkert smá stolt af henni, ungu mömmunni, því þetta er sko ekkert grín að lenda í svona aðstæðum en hún er búin að höndla þetta eins vel og hægt er að búast við og á eftir að vera stór og mikil stoð fyrir litla kút. Langamma Begga, langafi Sigurjón, amma Pebba, Frikki, Linda og fleiri eru líka búin að hjálpa mikið til og það hefur létt mikið á fyrir Karenu mína og Aron að finna að fólk er tilbúið til að styðja við þau eins og hægt er.

Næsta skref hjá þeim er að finna íbúð í Rvk. og koma sér fyrir þar, því Aron Dagur þarf að ná í alla þjónustu á stór-Rvk-svæðinu. Svo þarf Karen að taka bílpróf og verða sér út´um bílskrjóð, en allt kostar þetta nú peninga sem vaxa víst ekki á trjánum.

Þessvegna er svo erfitt fyrir mig að kyngja því að Akureyrarbær er búin að hafa af okkur allt sem við áttum og meira til.

Svo þegar maður hélt að mótlætið gæti ekki orðið meira þá verður dauðsfall í fjölskyldunni, mjög sorglegt og óvænt.

 

En nú verðum við bara að reyna að gera okkar besta til að halda nefi uppúr vatni, því ekki er hægt að gefast upp.

Vona að næstu skrif mín verði jákvæðari og meira ég (eins og ég á að mér að vera)

Veri´ði góð hvort við annað og munið að knús getur gert kraftaverk.

KKKK (knús, kossar, kreistur og klemmur);)

 

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 05:20:32 / ingalara

Ástæða þess að ég hef ekki skrifað uppá síðkastið er ......

........ að ég hef ekki frá neinu góðu að segja, nema um mína fjölskylu og mína traustu vini, sem ég er búin að halda langar ræður um í fyrri skrifum mínum, og hefur sú hrifning og þakklæti til þeirra ekkert breist.

Takk takk allar dúllurnar mínar (þið vitið hverjar þið eruð) þið hafið hreynlega haldið í mér lífinu síðustu vikur ;)

 

Þannig að á meðan að ég er reið, svekkt, þunglynd og búin á´ðí, þá held ég að það sé best að ég skrifi ekki eitthvað á síðuna sem ég seinna sé eftir.

Ég fór nefnilega að lesa færslurnar mínar frá byrjun – og kommentin- og það var svo frábært að sjá mig – Ingu Pingu Pó -í firstu færsunum og jafn sorglegt- að mér fanst allavega - að sjá hvað hratt það fór niðurávið, bæði andlega og líkamlega.

 

 

Það eina pósitífa sem ég fæ útúr þessu strögli mínu er að maður lærir að það er til fólk sem er alveg sama hverig öðrum líður – að ná þér niður á hné, þá er bara auðveldara að sparka.

Að maður tali nú ekki um það að þeim er líka alveg sama um lög og reglur það skiptir engu máli í þeirra augum.

Þannig að traust er eitthvað sem ég á ekki eftir að gefa frá mér auðveldlega eftir þessar hremmingar.

Ég verð að segja að ég vorkenni þessu fólki upp að vissu marki þegar ég heyri hvernig talað er um það – engin lofsöngur þar á ferð – þvert á móti og ætla ég ekki svo mikið sem hugsa um að skrifa svoleiðis áróður á síðuna mína, því eins og ég sagði áðan væri ég vís til að springa og það vil ég ekki gera.

 

 

Vona að ég geti byrjað að skrifa aftur sem allra fyrst, og þá á mínum jákvæðu nótum, sem hin eina sanna INGA PINGA PÓ.

Kkkk til ykkar allra sem það eiga skilið.

 

Ps: það hafa nokkrir skoðað síðuna mína og mér þætti æðislegt að vita hverjir eru að lesa, þannig að ég væri meira en lítið glöð ef þið segðuð ykkar skoðun eða bara smá ´kvitt´ nú svo er líka hægt að nota gestabókina :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 08:32:26 / ingalara

Ég held að þetta sé allt að koma.....

 

....með bakið á mér allavega og eru það frábærar fréttir.

Hins vegar er ég alveg búin eftir allar þessar tegjur, tog, straujun, stuttbylgjur og leisergeysla hjá sjúkraþjáfurunum mínum sem ég kalla þessa dagana mína engla, þó að það sé sko ekkert “himneskt”við það sem ég geng í gegnum hjá þeim. Mér er pakkað saman eins og verið sé að brjóta saman þvott, hnoðuð eins og deig í smákökur (sem ég hef ekki getað gert fyrir þessi jól) ég er undinn á alla þá kanta sem hægt er að vinda upp á (fyrir utan þessar blessuðu stóru festingar sem má  ekki hreyfa við fyr en búið er að fá útúr þessum helv....blessuðu myndum) og svo er þjösnast á vöðvunum sem eru allir í klessu ofan á allt hitt.

Er samt mög þakklát englunum mínum sem pína mig svona, því þessi píning er að skila góðum árangri, sem reyndar ekki var reiknað með í byrjun meðferðar. Svo það er bara frábært og jákvætt.

Er samt í smá bömmer því að ég og mín fjölskylda erum ekki að upplifa aðventuna eins og við höfum áður gert og planað var fyrir þessi jól líka, sérstaklega þegar maður er svo heppin að eiga algjöran ömmusnúllu strák núna sem er eins árs og verður hjá okkur um jólin ásamt mömmu sinni og pabba.

En eins og áður sagði þá hef ég allan þann stuðning frá fjölskyldunni sem hægt er að hugsa sér, já og þeir vinir mínir, sem sýnt hafa mér þann andlega og móralsklega stuðning eru svo sannarlega búnir að sýna að þeir eru sannir vinir.

Mér þykir leiðinlegast að hafa ekki heyrt meira frá mínum vinnufélögum, en það er bara ein sem hefur hringt hingað heim til mín og spurt frétta og það var yndislegt að heyra í henni, Anna Guðný mín takk fyrir það og svo hefur Halla mín komið til mín og líka kvittað á bloggið mitt, sem gerir alveg rosalega mikið fyrir mig þessa dagana. knús og kossar til þín fyrir það dúllan mínJ

Linda vinkona kemur í heimsókn eða hringir þegar það er smá breik hjá henni í vinnunni og ég þakka svo þúsund sinnum fyrir það flottust, það hefur allt að segja að vita að maður á vin í raun. 

Eins og þið “heyrið” þá er ég orðin alveg sturluð yfir því að vera hér heima, sérstaklega þegar maður hefur verið nánast gagnlaus til alls í allan þennan tíma og er ég því farin að ímynda mér allskonar vitleysu um nánast allt og alla og þá sérstaklega sjálfa mig. En ég vona að þetta sé bara allt saman ímyndun og að ég sé ekki bara einhver aumingi sem ekkert getur og að fólkið sem ekki hefur samband hafi bara hreynlega nó á sinni könnu – það eru nú einu sinni að koma jól og allir ferlega bissý á þeim tíma.... er það ekki??

En það er aðeins farið að birta til hjá minni vegna þess hve vel gengur hjá englunum mínum með að púsla mér saman, og ætla ég mér hér eftir að fara í Pollýönnu-leik og trúa því og treysta að þetta fari allt saman vel. “Og hún lifði hraust , kát og hamingjusöm það sem eftir var” ...er það ekki einhvernvegin svona sem öll góð ævintýri enda ??

Nú er hætt að gjósa og hraunið farið að kólna, og þá getur uppbyggingin hafist.

Jæja nú er komin aðfangadagsmorgun, Karen mín, Aron Dagur ömmustrákur og Haffi minn komin heilu og höldnu í hús, skrautið komið upp, hangikétsliktin í loftinu, gjafirnar tilbúnar og þá verða jólin örugglega bara yndisleg eftir allt saman. Hvað getur maður beðið um meira en að hafa fjölsylduna hjá sér, borða góðan mat og og horfa á börnin glöð, ánægð og full af spenningi?? Ég spyr bara...

Mikið rosalega er gott að hafa þetta bogg þar sem maður getur rasað út og skrifað það sem brennur á, þá öskrar maður minna á krakka greyin, bítur ekki neina hausa af og stendur upp frá tölvunni rólegri og í miklu betra skapi.

En nú ætla ég að fara að halda friðsæl jól með fólkinu mínu og vona að þið eigið falleg og gleðileg jól í faðmi ástvinaJ

Kkkk til ykkar allra frá ...Pollýönnu... J  J   

    


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 01:33:27 / ingalara

Vona að þið fyrirgefið mér......

.....ég veit að ég lofaði að vera bjartsýnni í mínum skrifum, en þessa dagana reynist það mér frekar erfitt.

Fæ ekki sneiðmyndartöku fyrr en 4 jan. (út af bakinu) en það er víst bara frekar stutt bið í svoleiðis dótarí á sjúkrahúsum í dag.

Ætti sennilega að vera bjartsýn yfir því, en eins og áður hefur komið fram þá er ég ekki sú allra þolinmóðasta og þegar maður getur ekki farið í vinnu eða tekið þátt í lífinu nema á einhvern aumingjalegan hátt, já þá er erfitt að halda í blessaða bjartsýnina.

 

Þetta ástand á mér er þó að skána mikið því að mínir frábæru sjúkraþjáfarar (er með tvo að vinna í mér) hafa unnið mikið og gott starf, losað um nokkrar “minni” festingar sem gerir það að verkum að ég er miklu betri í bakinu og hreifanleikinn meiri. Það versta er að þau, kraftaverkafólkið í Eflingu og læknirinn minn, vilja ekki hreifa við stóru “læsingunni” í mjóbakinu fyrr en búið er að fá útur myndatökunni.

Verkirnir eru ennþá slæmir en þar til gerðar töflur slá á þá, þannig að þetta er stundum næstum þolanlegt.

Fékk að vita það í dag að þegar það verður búið að “gera við” það versta tekur við stöng endurhæfin og þar á eftir mikil vöðvauppbygging og allur sá pakki....jibbý

Þannnig að jólin verða frekar “öðruvísi” ef að maður á að tala út frá þessari bjartsýnis-þerapíu sem ég hef verið að reyna að temja mér uppá síðkastið með misjöfnum árangri.

 

Það hefur líka verið mjög rólegt í kringum mig þessar vikur sem ég hef glímt við þetta vesen, eigninlega allt of rólegt, en fjölsyldan mín hefur verið, og er, algjörlega frábær í að hífa mig upp bæði andlega og líkamlega og er það á svona stundum sem maður virkilega finnur hvað maður er heppin að eiga góða að, væri líklega komin ansi likið lengra niður andlega án þeirra.

Ekki má gleyma Lindunni minni sem alltaf er til staðar sama hvað á dynur, sannur vinur þar á ferð, takk fyrir það sætust.

Anna Guðný mín ég vil líka þakka þér fyrir símtalið um daginn, það hafði mikið að segja fyrir mig, og sömuleiðis knúsið sem ég fékk frá þér Þorbjörg þegar ég staulaðist í vinnuna með þær ömulegu fréttir að ég kæmi ekki til ykkar í vinnu strax, líklega ekki fyrr en eftir áramót.

En nú í gleðigírinn ---  Hann Aron Dagur ömmustrákur er eins árs í dag (19/12) og fórum við fjölskyldan suður í firstu afmælisveisluna hans um helgina. Hann er svo mikil dúlla og lang fallegasti, besti, duglegasti, skemmtilegasti - og allt það – ömmustákur í öllum heiminum. Það var yndislegt að sjá fallega heimilið sem þið eruð búin að skapa fyrir ykkar litlu fjölskyldu elsku Karen og Haffi og mig hlakkar alveg rosalega til að fá ykkur um jólin.

Það var líka gaman að hitta mömmur og pabba, systkyni og ömmu og smella stórum gleðilegum jólakossum á þau. Hefði viljað hitta miklu feiri en eins og alltaf  þá var tíminn naumur og kella ekki alveg í sínu besta formi.

Það var líka frábært að heyra að John (pabbi Karenar, Patricks og Daniels) og Kristín kærasta hans ætla að láta splæsa sig saman 1 sept. næstkomandi, til hamingju með það.

Jæja, tókst að komast í smá bjartsýniskast og ætla að nota það til að reyna að koma mér vel fyrir í bælinu og kanski dett ég í lukkupottinn og næ að sofa svolítið.

Hafið það öll sem yndislegast um jólin og munið að knúsast og kyssast alveg heilan helling yfir hátíðarnar.

Þúsund jóla kkkk  o<l ; o)>

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 05:41:16 / ingalara

Það verða skyndi-jól hjá minni í ár

Ekki þannig meint að jólin verði haldin í einhverri skyndi, heldur að það verða notaðar skyndilausnir s.s. Jóa Fel smákökudeig til að skutla í ofnin, laufabrauðið keypt í Bónus-tilbúið á borðið, aðventuljós í alla glugga í stað þess að troða upp einhverjum seríuflækjum í gluggana og jólakortin gerð á netinu, þ.e.a.s. ef það fara yfir höfuð einhver jólakort út frá Löngumýrarliðinu í ár.

 

Ástæða þessara skyni-jóla er að ég er ennþá að díla við þetta bakbull og er ekki fær um að baka sörur eða piparkökuhús né slett´í form af neinu tægi. Skáparnir verða ekki teknir í gegn (reyndar er ég hætt því fyrir löngu svo það telst kanski ekki með) alsherjarþrifin eru ekki inn´í myndinni (var sosum ekki á planinu hvort sem er) og lítið á eftir að fara fyrir jóla/kerta skreytingum “el´extravigans” á borðum um þessi jól.

 

Hei !!! þegar ég fór að átta mig á því hvað ég var að skrifa hér fyrir ofan þá kveiknaði á perunni hjá minni ..... þetta verða bara þægileg, stresslaus jól (allavega eins stresslaus og þau geta orðið) og maður verður þá ekki eins og útspítt hundsskinn á aðfangadag.

Ef bara bakið vildi vera svo vænt að fara að haga sér skikkanlega þá væri þetta bara nokkuð gott. Bíð og vona að komast í þessa sneiðmyndartöku sem allra fyrst sem dok pantaði fyrir mig, því það er víst ekki sniðugt að reyna að losa þær festingar sem þar sitja sem fastast fyrr en búið er að ganga úr skugga um að það sé ekkert annað sem leynist þarna líka s.s. brjósklos, brestur eða rifa í vöðva o.s.f.

 

Svo mín þarf að vera mjög þolinmóð og þeir sem mig þekkja vita að það er ekki einn af mínum kostum, því miður, allavega ekki í svona tilfellum.

 

En ég er samt ákveðin í því að vera jákvæð, gera mitt besta og það allra mikilvægasta fyrir mig er að ég “smiti”ekki fjölskyldu og vini með einhverri neikvæðni, pirringi, aumingja-væluskap ... og óþolinmæði, því þá verða jólin ´deffenetlí” ekki stresslaus.

 

Gunni er frábær stuðningur fyrir mig og hefur enn og aftur sýnt mér hvað ég er heppinn að hafa nælt í hann (eða það sýnir hvað ég var klár í kollinum að hafa náð í hann) Hann stjanar við mig og gerir allt léttara fyrir mig bæði andlega og líkamlega, hann er einfaldlega bara allra bestur.

 

Krakka ormarnir mínir veita mér líka stuðning á allan þann hátt sem þau geta, fara með mömmu ´gömlu´ í búðina, keyra kerruna, ná í vörurnar, bera allt inn og út úr bílnum og kvarta ekki yfir neinu. Þau hjálpa til við þvottinn og tiltekt og þrif í húsinu, hvað meira getur maður beðið um ........... akkúrat ekki hálfa baun í bala  .... og hananú !!!!

Ég er því ekki aumkunarverð yfir “smá” bakveseni því ég á yndislegustu fjölskildu í heimi.

 

Nú er ég orðin svolítið væmin og tárkirtlarnir farnir að láta á sér kræla svo að ég held að þetta sé ágætis staður að hætta.

 

Þúsund kkkk til ykkar allra þarna úti og ég vona að aðventan verði falleg og friðsæll tími fyrir ykkur öll, munið að njóta hennar með fjölskyldu og vinum.... ekkert stress...

Inga  o<l ;o)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 03:16:51 / ingalara

Í ÞUNGUM ....

...Þaunkum.....

...Líkama.....

...Hugsunum.....

Það er það ástand sem mörg okkar könnumst við og upplifum inn´á milli í lífinu, og það er mín (þunga) staða akkúrat núna. Leyfið mér að skýra nánar :

Þankar = ég hef allt of mikið í gangi í hausnum á mér í einu, er niðurdregin og veit ekki hvernig ég á að vinna almennilega úr öllum þeim heimsins vandamálum sem á mér hvíla. (kannast einhver við þessa líðan?)

Líkami = (ókei við erum ekki að tala í kílóum) helur ástand líkamans sem er að haga sér eins og hann sé 90 ára - sem sagt lúin, þreyttur,verkir hér og þar og búinn að skila sínu – fyrir löngu.

Hugsun = sveiflukendar hugsanir, í litlu sambandi við veruleikann og geta gert hvern heila sem er að hafragrauti á ´nótæm´.Mínar hugsanir eru vart printanlegar á þessum tíma punkti, en ég get hreinskilnislega sagt að þeim má líkja við einhverskonar graut. Engin rökhugsun í gangi þessa dagana hjá minni.

Megnið af þessum þungu....öllu, hefur með það að gera að líkamlega er ég ekki uppá mitt besta (vægast sagt) þessa dagana vegna bakmeiðsla sem ég nældi mér í, í vinnunni og hefur það að smitað mig (og mína) rækilega á andlegu hliðinni (eins og komið hefur fram á fyrri færslum mínum)

Vinnufélagarnir eru líka örugglega orðnir mjög pirraðir (eðlilega) á því að mín mætir ekki til vinnu vegna veikinda og því ekki hægt að treysta á “bannsetta móttökudömuna” (mig) og er ég með þvílíkan mega móral yfir því, svona ofaná móralinn gagnvart börnunum, Gunna og heimilinu. Og til að toppa þetta allt saman þá eru að koma jól og mín bara liggur í bælinu og getur ekkert gert. Gunni og grislingarnir mínir hafa algjörlega verið minn stuðningur í gegnum þetta allt saman, þúsund þakkir elskurnar mínar fyrir það, þið eruð æði !!!!

Jóla-andinn hefur ekki svifið yfir Löngumýrinni eins og vaninn er á aðventunni, en ég vona að allt fari nú að snúast til betri vegar því ég er á batavegi (vona ég) Hægt og rólega, með hverjum deginum, fynn ég einhvern mun (suma daga meiri en aðra) en “þetta reddast allt saman” – bara nota gömlu góðu íslensku valkyrjurnar á þetta ......... er það ekki ???

Jæja dúllurnar mínar nú er ég búin að létta á mér all rækilega og vil þakka þeim sem héldu það út að lesa þessa niðurdrepandi færslu og benda þeim sem náðu svona langt að ég – Inga – er svo langt frá því að vera svona neikvæð manneskja og er staðráðin í því að sanna það á færslum mínum hér eftir. Þýðir ekkert að vellta sér uppúr einhverju volæði lengur.....koninn tími til að brosa framan í heiminn, og vona bara að fá smá glott á móti.

Þúsund knús, kossar, kramm og kreistur til ykkar allra - sérstaklega til þeirra sem kvitta. o<l;o)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  13  Alls: 11954